Námskeið: Virkjum kraftinn í streitunni - FULLBÓKAÐ

  • 16.5.2024, 13:00 - 16:00, Engjateigur 9

Nýjustu streiturannsóknir sýna að við höfum stórlega vanmetið þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur.

Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa ljósi á eðli streitu og hvernig hægt er að virkja hana til góðra verka. Það hvernig við hugsum skiptir mestu því kraftur hugans er mikill. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður þeirra séu mjög streituvekjandi. Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið, heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst og samvinna og frammistaða batnar.

Hugurinn hefur áhrif á líkamann og með einföldum hugarfarsaðferðum er hægt að virkja streituviðbragðið til stórra verka enda viðbragðið með eindæmum aflmikið.

Sagt er frá næstum því ótrúlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið og þar koma m.a. fram systkinin kortisól, oxýtosín, serótonín, adrenalín og útlenskur frændi þeirra DHEA. Nágranninn Ghrelin hungurhormónið kemur einnig við sögu.

Um er að ræða hagnýta vinnustofu sem hentar öllum sem vilja skilja betur fyrirbærið og ná að virkja kraftinn sem felst í streitunni.

Fyrirlesari: Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Námskeiðið er ókeypis. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Mikilvægt að tilkynna um forföll á netfangið: skrifstofa@verktaekni.is eða í síma: 535 9300.


Skráning á viðburð

Þátttakandi

Til að fyrirbyggja ruslpóst: