Beint í efni

Fé­lags­að­ild og starfs­heiti

Saman erum við sterkari. Það skiptir miklu máli að vera í traustu stéttar- og fagfélagi sem á langa sögu og tengingu inn í þitt starfsumhverfi. Starfsheiti verkfræðinga og tæknifræðinga eru lögvernduð.

Sólfarið við Skúlagötu í Reykjavík.

Félagsgjöld í VFÍ eru lág miðað við önnur sambærileg félög á íslenskum vinnumarkaði.

Félagsgjaldið í VFí er föst upphæð, 3.750.- krónur á mánuði en ekki prósenta af heildarlaunum.
Dæmi um önnur félög þar sem félagsgjaldið er prósenta af launum: FÍH (0,9%), VR (0,7%), BHM (allt að 1,5%), Viska (0,95%), Efling (0,7%).  

Dæmi af launþega með 900 þúsund í heildarlaun á mánuði:

Félagsgjöld í Verkfræðingafélaginu: Kr. 3.750.-
Félagsgjöld í Visku (0,95%): Kr. 8.550.-
Mismunur á mánuði: Kr. 4.800.- Mismunur á ári: Kr. 57.600.-

Þau sem hafa lokið burtfararprófi í verkfræði eða tæknifræði geta orðið fullgildir félagsmenn í VFÍ. Námið skal vera viðurkennt af ENGINEERS EUROPE, Evrópusamtölum félaga verkfræðinga og tæknifræðinga. Þau sem eru í námi geta orðið ungfélagar og greiða ekki félagsgjald. Verkfræðingafélag Íslands stendur vörð um starfsheitin og gæði námsins hér á landi í verkfræði og tæknifræði.